Friðhelgi einstaklingsins og fjölskyldunnar er forsenda einingar í samfélaginu og velferð þjóðfélagsins hvílir á traustum stoðum fjölskyldunnar. Eining fjölskyldunnar er grunnstoð samfélagsins, fyrirmynd þess og styrkur.
Sáttmáli samfélags þarf að hafa sömu gildi og fjölskyldan byggir á: Samhug, samvinnu og samábyrgð. Hlutverk samfélagsins er að viðhalda, treysta og verja þessi gildi.
Stjórnarskrá er sáttmáli sem treystir jafnrétti , frelsi og vernd þegnanna. Á að taka til verndar umhverfisins og tryggja að auðlindir þjóðarinnar séu í eigu samfélagsins. Tryggja þátttöku almennings í mikilvægum ákvörðunum um þjóðarhag.
Ákvörðunar /þátttökurétt almennings:
- Þjóðar atkvæðagreiðslur
- Kosningafyrirkomulag
- Endurskoðun stjórnarskrár
Rétt þegnanna gagnvart stjórnvöldum:
- Þegnréttur/vernd
- Jafnrétti
- Gegnsæi
Forseti, Alþingi,-framkvæmda-og dómsvalds:
- Hlutverk
- Valdskipting
- Ábyrgð
- Samskipti
- Samvinna
- Eftirlit:
Umboðsmaður Alþingis
Eignarhald þjóðarinnar á auðlindum og þjóðlendum:
- Vernd gegn afsali.
- Nýtingaréttur.
Fullveldisákvæði:
- Um aðild að Alþjóðastofnunum
- Framsal valds frá Alþingi og ríkisstjórn
Umhverfisvernd.
- Náttúra til sjós og lands.