Er af bændaættum eins allir Íslendingar. Fæddur í Reykjavík. Móðir: Ólafía Sigurbjörnsdóttur húsmóðir, fæddri í Dýrafirði, dóttir Sigurbjörns Jóhannessonar f. í Grunnavík, Jökulfjörðum, bakara og matsveins og konu hans Bergþóru Björnsdóttur f. Höfða Dýrafirði. Faðir: Svavars Björnsson vélstjóri f. Fljótum Skagafirði, sonur Björns Jónssonar b. Teigum Fljótum (fórst með Maríu-Önnu á hákarlaveiðum 1922) og konu hans Rósu Jóakimsdóttur f. Fljótum.
Ólst upp í Reykjavík, var á unga aldri í sveit hjá föðurömmu Rósu og Eggert föðurbróður að Mýrum og nú bónda að Felli í Sléttuhlíð, Skagafirði. Fór 15 ára á sjóinn hjá Landhelgisgæslunni og starfaði það í 11 ár sem messi, háseti, bátsmaður og stýrimaður í útfærslu landhelginnar í 50 og 200 sjómílur. Er giftur þeirri sem ég varð ástfanginn af, Maríu Kristínu Kristjánsdóttur bakaradóttur frá Flateyri. Eigum tvö góð börn sem munu spjara sig í lífinu. Lífshlaupið í grófum dráttum hér að neðan:
NÁM:
1969-1972 STÝRIMANNASKÓLINN Í REYKJAVÍK I,II og III stig Farmannapróf.
1972–1973 STÝRIMANNASKÓLINN Í REYKJAVÍK Varðskipadeild.
1976-1978 TÆKNISKÓLI ÍSLANDS Rekstrarfræði.
1991–1993 H Í. – ENDURMENNTUNARSTOFNUN Viðskipta og rekstrarfræðinám
1997–1998 H Í. – ENDURMENNTUNARSTOFNUN Nám í Verðbréfamiðlun.
STÖRF:
1972– 1976 LANDHELGISGÆSLAN. III. II. og I stýrimaður. Kafari og kennari í skyndihjálp.
1978– 1980 KAUPFÉLAG ÖNFIRÐINGA. Kaupfélagsstjóri. Verslun, sláturhús, fiskverkun, útgerð.
1980– 1981 ÍSLENSKA UMBOÐSALAN HF. Útflutningur sjávarafurða.
1981– 1982 SJÖSTJARNAN HF. Rekstrarstjóri. Rekstur frystihúss og togara.
1983– 1985 HAFSKIP hf. Deildarstjóri flutningadeildar.
1986– 2000 GRANDI HF. Útgerðarstjóri, rekstur níu togara. Rekstrarráðgjöf við erlenda samstarfsaðila í Chile.
2001-2002 RÁÐGJÖF -VERKEFNASTJÓRN. Sameining fiskmarkaða og Reiknistofu þeirra og sjávarútvegsfyrirtækja á Íslandi, Chile og Argentínu.
2002 HÁTÍÐ HAFSINS í Reykjavík 2002. Framkvæmdastjóri .
2002-2005 SCANMAR Á ÍSLANDI. Framkvæmdastjóri tæknifyrirtækis í sjávarútvegi.
2006-2009 VERKEFNASTJÓRN. Fyrir fyrirtæki í fiskvinnslu og útgerð á Íslandi og við Máritaníu.
2011-2014 ÁLVERIÐ EHF. Framkvæmdastjóri
2014- SIMA HOSTEL Eigandi og framkvæmdastjóri
FÉLAGSSTÖRF:
1987–1995 FISKIÞING. Fulltrúi Reykjavíkur á Fiskiþingi og í stjórn Fiskifélags Íslands
1987– 2000 ÚTVEGSMANNAFÉLAG REYKJAVÍKUR. (ÚR) Formaður stjórnar.
1987–2000 LANDSAMBAND ÍSLENSKRA ÚTVEGSMANNA. (LÍÚ) Varamaður í stjórn. Setið í ýmsum nefndum á vegum samtakanna.
1990–1992 AFLAMIÐLUN. Fyrsti formaður stjórnar. Aflamiðlun var sett á í Þjóðarsáttarsamningunum til að tryggja nægt hráefni frá íslenskum útgerðum til fiskvinnslu á Íslandi og takmarka útflutning í gámum.
2000-2002 FISKMARKAÐUR ÍSLANDS HF. Stjórnarformaður. Vann að sameiningu Fiskmarkaðs Breiðafjarðar og Faxamarkaðar.
2000-2002 ÍSLANDSMARKAÐUR HF. Reiknistofa fiskmarkaðanna á Íslandi. Stjórnarformaður.Vann að sameiningu Reiknistofu Íslandsmarkaðar og Reiknistofu fiskmarkaðanna í nýjan Íslandsmarkað hf.
1990-2009 Mannúðarstörf á vegum ýmissa félagasamtaka.
RITSTÖRF:
1972- Ljóðagerð, ritstörf, þýðingar.
1983-1987 Ritstjóri MORGUNS, Tímarits Sálarrannsóknarfélags Íslands
1987-2018 Þýðinga og útgáfa bóka um andlega heimsspeki.
1985-2018 Greinarskrif í blöð og tímarit.